Lynard skynard- free bird
Kannski tími á smá öpdeit.....
Er gjörsamlega búin að snúa sólahringnum við, svo það er bara ekkert annað að gera en blogga og skoða myspace síður, hlusta á the ones ( www.myspace.com/theonesiceland ) Akureysk? nei hvernig er þetta beygt hljómsveit, sem eru að komast í mitt uppáhald og jeff buckley sem syngur eitt besta lag allra tíma...Hallelujah....ojæja
Fór í botnlangaaðgerð, geggjað gaman. Hef ekkert mætt í skólann síðan hann birjaði eftir páskafrí, það er heví nice. Kannski það sé ástæðan fyrir svefnleysi mínu, kæruleysi að læra ekkert og liggja undir sæng allann daginn. Ég veit ekki...
Sumardagurinn fyrsti liðinn og allt komið á kaf í snjó...ekki svo gott, Íris Björk fékk alltaf sippuband í sumargjöf þegar hún var lítil, ég fékk hjólabretti eða skauta, eða svona marglitaðann gorm, eða fullt af poxi..hver man ekki eftir poxi? alltaf að bítta og svona, fá kidda smíðó til að búa til sleggjur handa manni..hehe
Svo VMA-ingum til mikillar gleði vann Eyþór fyrir okkar hönd söngkeppnina hér um daginn, ég komst ekkert út, en fylgdist spennt þó veik með í imbanum, fékk þó helvíti góða surprise heimsókn frá Rebekku til að sjá um litlu systir sína...Og þó ég hafi verið á bannlista með gesti sem var btw henni að kenna fengum við undanþágu....Mjög gott Simmi, mjög gott....
Símon er dauður.....fiskurinn þ.e.a.s .......R.I.P.. Svo blandarinn er kominn í önnur góð störf núna hehe...boozt á hverjum degi..jeee
Held þetta sé gott í bili.....stel nokkrum djókum svo þetta sé ekki alveg glatað blogg...:) Ég hef samt ekkert á móti mömmum með smá hold....mín er ágæt...;)
*mamma þín er svo feit að í hvert skipti sem hún snýr sér við á hún afmæli:)
*mamma þín er svo feit að þegar hún sagði mér þyngd sína hélt ég að hún væri að segja mér símanr. sitt
*mamma þín er svo feit að hún þarf að nota búmerang til þess að koma utan um sig beltinu
*mamma þín er svo feit að þegar hún hopppar í sjóinn í Bandaríkjunum kemur flóðbylgja í Indlandi:)
Mamma þín er svo feit að þegar hún setur gemsann í rassvasann þá er hann utan þjónustusvæðis!
- Mamma þín er svo feit að þegar hún gengur í radio X bol reynir þyrla að lenda á henni.
- Mamma þín er svo feit að þegar hún fer á vigtina kemur upp "to be continued"
- Mamma þín er svo feit að þegar hún fer út í gula regnjakkanum sínum kallar fólk á hana “taxi ! ”.
Planið um helgina er að slaka á, drekka trópí, horfa á Wedding singer milljón sinnum....Hugsanlega leita að íbúð fyrir næsta haust, horfa á liverpool leikinn á morgun, fjarðabyggð-magni og horfa á írisi brosa allann daginn.......
Mæspeis
www.myspace.com/kolfinna_maria