Lynard skynard- free bird
Kannski tími á smá öpdeit.....
Er gjörsamlega búin að snúa sólahringnum við, svo það er bara ekkert annað að gera en blogga og skoða myspace síður, hlusta á the ones ( www.myspace.com/theonesiceland ) Akureysk? nei hvernig er þetta beygt hljómsveit, sem eru að komast í mitt uppáhald og jeff buckley sem syngur eitt besta lag allra tíma...Hallelujah....ojæja
Fór í botnlangaaðgerð, geggjað gaman. Hef ekkert mætt í skólann síðan hann birjaði eftir páskafrí, það er heví nice. Kannski það sé ástæðan fyrir svefnleysi mínu, kæruleysi að læra ekkert og liggja undir sæng allann daginn. Ég veit ekki...
Sumardagurinn fyrsti liðinn og allt komið á kaf í snjó...ekki svo gott, Íris Björk fékk alltaf sippuband í sumargjöf þegar hún var lítil, ég fékk hjólabretti eða skauta, eða svona marglitaðann gorm, eða fullt af poxi..hver man ekki eftir poxi? alltaf að bítta og svona, fá kidda smíðó til að búa til sleggjur handa manni..hehe
Svo VMA-ingum til mikillar gleði vann Eyþór fyrir okkar hönd söngkeppnina hér um daginn, ég komst ekkert út, en fylgdist spennt þó veik með í imbanum, fékk þó helvíti góða surprise heimsókn frá Rebekku til að sjá um litlu systir sína...Og þó ég hafi verið á bannlista með gesti sem var btw henni að kenna fengum við undanþágu....Mjög gott Simmi, mjög gott....
Símon er dauður.....fiskurinn þ.e.a.s .......R.I.P.. Svo blandarinn er kominn í önnur góð störf núna hehe...boozt á hverjum degi..jeee
Held þetta sé gott í bili.....stel nokkrum djókum svo þetta sé ekki alveg glatað blogg...:) Ég hef samt ekkert á móti mömmum með smá hold....mín er ágæt...;)
*mamma þín er svo feit að í hvert skipti sem hún snýr sér við á hún afmæli:)
*mamma þín er svo feit að þegar hún sagði mér þyngd sína hélt ég að hún væri að segja mér símanr. sitt
*mamma þín er svo feit að hún þarf að nota búmerang til þess að koma utan um sig beltinu
*mamma þín er svo feit að þegar hún hopppar í sjóinn í Bandaríkjunum kemur flóðbylgja í Indlandi:)
Mamma þín er svo feit að þegar hún setur gemsann í rassvasann þá er hann utan þjónustusvæðis!
- Mamma þín er svo feit að þegar hún gengur í radio X bol reynir þyrla að lenda á henni.
- Mamma þín er svo feit að þegar hún fer á vigtina kemur upp "to be continued"
- Mamma þín er svo feit að þegar hún fer út í gula regnjakkanum sínum kallar fólk á hana “taxi ! ”.
Planið um helgina er að slaka á, drekka trópí, horfa á Wedding singer milljón sinnum....Hugsanlega leita að íbúð fyrir næsta haust, horfa á liverpool leikinn á morgun, fjarðabyggð-magni og horfa á írisi brosa allann daginn.......
Mæspeis
www.myspace.com/kolfinna_maria
Bónus EKKERT bruðl!!!
En það er engin niðurstaða komin hjá manni útaf þessu blessaða nafni, ætla að tala við mömmu og pabba og sjá hvað þeim finnst um þetta...Þakka samt hjálpina frá ykkur.
Ég er að spá í að stofna listaskóla fyrir fólk sem teiknar Sponge Bob....Verð sjálf auðvitað sjálfkjörinn skólastjóri þar sem ég er teikna brilliant svampa....Sá næsti verður kúreki...;)
Svo er það bara hjemme um helgina, á föstudaginn leggjum við vinkonur í hann heim og beint á vorskemmtun grunnskólans um kvöldið, svo kíkir maður auðvitað á neskið á smá rúnt. Er samt ekki einhver stemmari fyrir þessu blessaða balli á laugardeginum? Er tilbúin að keyra fyrir einhverja ef þeir vilja, vill ekki vera ofur þunn og hrillilega tussuleg í fermingu á hornafirði á sunnudeginum..hehe
Já eitt ofurvandræðilegt móment í bónus í dag. Fór með hinum helmingnum henni Öglu að versla burger spelt kex, og smjör (já hollustan í fyrirrúmi) og ég ætlaði að hlaupa og ná í undanrennu. Labba bara salí róleg og rekst í eitthvað spjald sem inniheldur svona 5000 dvd myndir...Og ALLAR myndirnar hrynja á gólfið...Ég gríp um munninn...Bara fookk Kolfinna María Níelsdóttir hvað í andskotanum gerðiru núna...? Stend þarna ofurvandræðileg að týna upp þessar myndir.. Neinei koma litlar dömur og hjálpa mér og bjarga mér frá hrikalegri skömm....úff

Ýmindið ykkur þessar dvd myndir í tugunum talið á gólfinu í bónus

Önnur vandæðilega bónus sagan mín gerðist þegar ég fór að versla með mömmu, pabba og Rebekku á egilsstöðum fyrir svona 2 árum. Ég og Rebekka eins og við erum, alltaf að rífast og slást, erum eitthvað að deila þarna. Við eitthvað að rölta og hún alltaf að ýta í mig. Svo hafði einhver misst jógúrt á gólfið og jogurt útum allt.. Svo birjar Rebekka....Og hrindir mér í þessa jógúrt kássu, og ég flýg aftur fyrir haus og beint í jógúrtið....Og ekki var það skárra að þetta var á laugardegi, troðið í bónus, og þetta gerðist beint fyrir framan kassana...ALLIR gláptu á mig, ég ógeðslega vandræðileg, ekkert nema jógúrt og Rebekka skessan skellihlægjandi....
Jáhénna hér...
Í gærkvöldi fór maður svo í fóbó, með velvöldum aðilum þ.e. Ég, íris björk, valla, örn, ommi, konni, kobbi og agla...meget gaman...Svo fór ég aftur í bolta í morgun í íþróttatíma með strákunum og svo aftur í dag í vma tímanum...DUGNAÐUR!! ójá...
En þetta komið að sinni...þarf í háttinn, er að fara á skauta í fyrramálið....vííí
bæjó...
MYNDIR og nýtt nafn??
Var að setja myndir inn í albúmið "Hver man ekki eftir...?"
Ég er mikið búin að pæla síðustu daga um að breyta nafninu mínu....þá bæta ættarnafninu beck við.
1.Kolfinna María Níelsdóttir Beck
2.Kolfinna María Beck
3.Kolfinna María Beck Níelsdóttir
4.Kolfinna María Níelsdóttir
Erfitt að velja...smá hjálp.
Hvorki kettir né hundar í Grímsey!!!!
Jæja nú liggur maður bara hálfveik í rúminu með grjónahitapúðann á mallanum að reyna róa hann niður. Þurfti að fara úr skólanum í dag, fékk bara geðveikann krampa.. Vildu ekki allir vita þetta eller?
Mamma, pabbi, Rebekka og Hannes komu hingað norður síðustu helgi, mamma varð 40 ára svo þau komu hingað í rómantíska helgarferð, leikhús, útað borða á greifann sem kostaði btw 19000 kall.. ég missti andlitið á gólfið...Hannes og Rebekka komu hingað bara djammferð, gistu hérna á vistinni og fórum í geggjað froðupartý á laugardaginn..! Rebekka var samt svo ógeðslega full að ég fékk skammir hjá Jóni og Simma húsverði daginn eftir...Er komin á bannlista með gesti...BÖMMER...hvað um það..
Ég, Íris B, Agla, Guðrún, Lalli, Kobbi og Fúsi fórum í fótbolta í gær hjá brekkuskóla, það var heví fínt, ljósin slokknuðu samt hálf 11 svo við vorum í myrkvabolta alveg klukkutíma....Þetta kvöld endaði með kúlu á lærið....og Agla á hækjum...Veit samt ekki hvernig kobbi er í pungsanum eftir "fast" skot frá mér í hann...hehe
Hvað er svo að gerast um helgina krakkar? Austfirðingar á leið hingað svo maður verður að gera sem allra best úr helginni..;)
jæææja stal nokkrum myndum af heimasíðum sem ég ætla að skella hérna inn.....í albúmið Akureyri
Tilefni til að blogga segiði??
Umm jæja hvar skal birja. Rebekka og Hannes komu hingað til mín fyrir 2 vikum minnir mig og gistu yfir helgi. Við fórum á capone á föstudagskvöldinu og Sjallann á laugardags. Þetta var ágætis helgi og gott að fá einhverja í heimsókn..:)
Svo fór ég heim með Öglu, Guðrúnu og Dagrúnu gellum þegar þorrablót ME var. Vann og borðaði góðann mat... Var að keyra á föstudagskvöldinu en svo var partý hjá Konný daginn eftir....rosa gaman þá bara. Gísli fékk reyndar gat á hausinn. æj
Gaaaman að þessu öllu saman..!! Þaggi??
Herðu jú svo var nú söngvakeppni VMA síðasta fimmtudag, s.s. forkeppnin fyrir söngvakeppni framhaldskólanna. Og ég og Katla tókum The blewers daughter með Damien Rice. Ég var geðveikt stressuð og skalf á löppunum þegar við fórum á svið.. Æjh það komu nokkrir falstónar..en það gerist bara hjá þeim bestu...heheh en já það voru 24 keppendur eða atriði og við Katlus lentum í 2. sæti..Mjög gott, ekkert smá ánægð..! Fengum sitthvort gjafabréf á Greifann fyrir 5000 kall. Og ég bauð stelpunum mínum, Í, Þ, og ÍB útað borða og Katla bauð Öglu.
Eyþór heitir strákurinn sem lenti í 1.sæti, ég sá bara þegar hann tók sigurlagið og ég brosti næstum allann tímann það var svo geggjað. Eitthvað lag með Deep purple. Vonandi stendur hann sig jafnvel í söngvakeppni framhaldskólanna og þarna...!!
En já bara til að segja aðeins hvað var að gerast í "græna herberginu" þar sem allir keppendunir voru. Það var réttast sagt öömurlegt! við fengum ekki að fara neitt, máttum varla hlusta á hina keppenduna syngja. En við fengum nú pitsu og við nokkur fórum í einhverja leiki þarna sem var frekar kjánalegt en mjög gaman..:)
En svo er það þessi helgi.. Í gær fórum við til Öglu, ég og Íris Björk. Kvöldið birjaði á bjórleysi en Berglind Björk var fljót að redda því;) :* Fórum í drykkjuleiki og puntuðum okkur sem tók btw freekar langann tíma..heheh.... ennn fórum svo í sjallann...hitti Nonna frænda og vini hans og dansa eiginlega allt kvöldið með þeim...þetta var baaara sniildarkvöld..hef ekki skemmt mér svona vel í laangann tíma..!
Í dag hékk ég í rúminu til að ganga 4...Gerða frænka hringdi í mig, mér til miiikillar undrunar og bauð okkur Nonna í bollu kaffi.. Það var svosem ágætt... Fór svo með Öglu á Huginn-Reynir/Dalvík og svo til Ketils, pöntuðum okkur pitsu og kíktum svo til Katlusar í kvöld kaffi og rólegheit..
Vá langt blogg...hehe
Svo er það heim núna eftir skóla á fimmtudaginn:D:D jibbíí þarf bara að redda mér fari einhvernveginn...:D Mamma að koma frá Kanada og svona, Rebekka á afmæli og Valaskjálf að opna aftur´...Næsta helgi verður snilld....
En þangað til næst krúttin...Góðan nótt;):***
Skotin? Nei fótbrotin...
Núna sit ég bara uppí rúmi, ein og yfirgefin. Finn ekki Írisi Björk.
Er samt að fara til Kötlu í mat og svo kíkja kannski á capone með gellunum.látið sjá ykkur í kvöld....blessó;)
Bókaormar takið eftir..
hás hann másar þreyttur.
Íþróttir hann ekki kann,
aumur stynur sveittur.
Ávallt valinn síðastur
og áberandi stystur.
En drengurinn svo ráðvandur
alltaf mætir fyrstur.
Nærsýnn væskill viðkvæmur
við alla bolta hræddur.
Er miklu heldur bókhneigður
en fyrir það er hæddur.
Á unglingsaldri röddin brást
af öllum talinn rola.
Missti sína fyrstu ást
í hendur brúnkufola.
En tíu árum síðar hann,
vinsæll bæði og virtur,
hjá einkafyrirtæki vann
armani skyrtu gyrtur.
:)
Á þessu ári...
Ég hef víst ekkert að gera. Íris hrýtur hérna við hliðina á mér. Kl er 4:22 og ég ennþá vakandi. Kannski útaf því ég vaknaði kl 13, lagði mig kl 5-6. Kannski.
Ég strengdi (?) mér engin áramótaheit í ár. Finnst það bara bull. "Já á næsta ári ætla ég að vera geeggjað dugleg í ræktinni." Been there done that. Það entist í 2 vikur og ég er ennþá að borga árskort í ræktinni Á REYÐARFIRÐI. Síðasta afborgunin er núna. Svo guði sé lof.
En í stað áramótaheita ætla ég að segja það sem mig langar og ætla vonandi að gera á þessu ári. Og ég tek það fram, þetta eru ekki áramótaheit! :
*Vera dugleg í skólanum
*Spara peninga
Djamma minna
Kaupa mér bíl
Fara í flugvél
*Heimsækja ömmu og Adda & Dúddý og co í Vestmanneyjum
Fara til útlanda
*Æfa fótbolta án þess að meiðast og hætta
Kaupa mér annað kort í ræktinni hérna á AK og fara sem oftast með Írisi Björk
Hætta á vistinni og leigja næsta haust
Get ekki hugsað fleiri núna. Það er svo þögullt í kringum mig ég er að verða þunglynd...! Af hverju geta fiskar ekki talað við mann..?









Kolfinna María Níelsdóttir.
Slatti af geðveiki?
Svo er það heim á morgun til Akureyrar, þá fer allt í fyrra horf eins og maður segir held ég. Hlakka mest til að sjá elskulega herbergisfélagann og fjölskyldu okkar, æris björk og fiskana sólmund, sigga hall, símon og ef greyin eru ekki dáin. Erum nú búnar að missa 2 fiska..:(
Ég var að horfa á survivor cook island eða hvað sem þetta heitir núna. 13 seríur sem er búið að framleiða. Hvernig í andskotanum heldur þetta vinsældum. Svo segir hostinn "úff þetta er besta survior þáttaröðin sem hefur verið gerð" hann segir þetta í hverri seríu. Haha ég þoli ekki svona raunveruleikaþætti.
Var líka að horfa á Amazing race, væri nú alveg til í að taka þátt í því bara til að skoða heiminn. Verð að fara í heimsreisu einhverntímann áður en ég dey.
Svo var ég líka að lesa blog hjá Konna porn, og hann var að tala um að hvernig í andskotanum stelpur hérna á Íslandi gætu verið óléttar og ekki fatta það fyrr en barnið skýst út. Jú sko, ef gellan er það feit sést ekkert á henni. Síðan er hægt að vera á túr á meðgöngu. Svo þetta ætti alveg að vera hægt.
Konni ertu ekki í gettu betur liðinu?
Verð að setja smá speki inn
"Sannleikurinn er sagna bestur" þetta hefur maður lært..
Chao mi chikitalindos..:**